Monday, September 30, 2013

Íslandsmótið um helgina



Sælar stelpur og foreldrar

Þá er komið af fyrsta mótinu á Íslandsmótinu í vetur. Mótið er haldið núna um
helgina (4-6 október) og eigum við leiki föstudag og laugardag. Við verðum með tvö lið á mótinu
einsog á Reykjavíkurmótinu og spilar hvert lið 4 leiki á mótinu. Það er ekki jafn stutt á milli leikja og síðast, en þið sjáið tímasetningar hér fyrir neðan.
Mótið er haldið í íþróttahúsinu Dalhús í Grafarvogi, heimavelli Fjölnis (Grafarvogslaug).

Fylkir 1 spilar á föstudeginum og eiga að fyrsta leik kl. 16.30 (mæting kl. 15.50, upphitun 16.10). Þær spila sem sagt fyrsta leikinn kl. 16.30 og seinasta leikinn kl. 20.30    

Föstudagur 4.október
16:30
Selfoss 1

:

Fylkir 1
18:30
Fylkir 1

:

Fram 1
19:30
Afturelding 1

:

Fylkir 1
20:30
Fylkir 1

:

Haukar 1

Fylkir 2 spilar á laugardeginum og eiga fyrsta leik 11.00 (mæting 10.20, upphitun 10.40). Þær spila sem sagt fyrsta leik 11.00 og seinasta leikinn sinn kl. 15.30


Laugardagur 5.október
11:00
Fylkir 2

:

Haukar 2
12:30
ÍBV 2

:

Fylkir 2
14:30
Fylkir 2

:

HK 2
15:30
Stjarnan 2

:

Fylkir 2

Það sem stelpurnar þurfa að koma með er bara það sama og síðast. Fylkisbúningur(Bolur, Stuttbuxur), sokkar, skó til að keppa í, vatnsflaska og helst einhvern íþróttagalla eða eitthvað slíkt til að vera í á milli leikja. Það er áfram gott að koma með eitthvað hollt og gott nesti með sér, til að fá smá orku milli leikja, hinsvegar er aðeins meiri tími milli leikja (eftir fyrsta leik hjá Fylki 1 og öðrum leik hjá Fylki 2) þar sem að það væri hægt að fara úr húsi til að borða, en ég hinsvegar mæli með því að koma frekar með gott nesti sem að er þá hægt að borða á þessum tíma, en svo er líka gott að vera með ávexti eða annað til að fá smá orku milli leikjanna.  

Ég mun síðan boða til foreldrafundar mjög bráðlega þar sem að ég mun kynna mig stuttlega, verður farið yfir veturinn, kosið foreldraráð og ýmislegt fleira. Ef það eru síðan einhverjar spurningar sem að vakna upp varðandi mótið eða varðandi flokkinn eða eitthvað annað, þá megið þið hafa samband við mig.

Kveðja,
Hörður G. Bjarnarson
Sími: 868-5611
Tölvupóstfang: hordur1981@gmail.com

Thursday, September 19, 2013

Fyrsta mót tímabilsins

Jæja, þá er komið að fyrsta móti timabilsins og er það Reykjavíkurmótið sem verður laugardaginn 21. september. 

Við verðum með tvö lið á mótinu sem verður spilað í
íþróttahúsinu Austurbergi í Breiðholti. Hvert lið spilar þrjá leiki á mótinu, sem er spilað nokkuð þétt, en þið sjáið tímasetningar hér fyrir neðan. 
Leikirnir eru 2x10 mín.

Fylkir 2 mæta kl. 7.30 (upphitun 7.40) í Austurberg og spila fyrsta leikinn kl. 8.00 og seinasta leikinn kl. 10.00            

Fylkir 1 mæta kl. 8.00  (upphitun 8.10) í Austurberg og spila fyrsta leikinn kl. 8.30 og seinasta leikinn kl. 10.30    

Liðskipting verður tilkynnt á æfingu og er líka hérna aðeins neðar á síðunni.

A-riðill
Dags.
Tími
Viðureign
21-09-13
08.00
ÍR 1
-
Fylkir 2
Austurberg
21-09-13
09.00
Fylkir2
-
Víkingur
Austurberg
21-09-13
10.00
Fram
-
Fylkir 2
Austurberg
B-riðill
Dags.
Tími
Viðureign
21-09-13
08:30
Fylkir
-
Fram 2
Austurberg
21-09-13
09:30
Fylkir
-
Fjölnir
Austurberg
21-09-13
10:30
ÍR 2
-
Fylkir
Austurberg











Fylkir 1 Fylkir 2
Ásthildur Auður
Elísabet Ásrún
Guðlaug Lí Hrafnhildur
Hanna Karen Indíana
Sara Hlín Ída Marín
Selma María Katrín Tinna
Sigrún Erla Lára Rósa
  Sara Sóley
   
Það sem stelpurnar þurfa að koma með er Fylkisbúningur(Bolur, Stuttbuxur), sokkar, skó til að keppa í, vatnsflaska og helst einhvern íþróttagalla eða eitthvað slíkt til að vera í á milli leikja. Einnig er æskilegt að koma með eitthvað hollt og gott nesti með sér til að fá smá orku milli leikja, þar sem það gefst ekki mikill tími til að fara úr húsinu á milli leikjanna og takmarkað framboð getur verið á hollu snarli á leikstað.

Að lokum vil ég minna á bloggsíðuna hjá okkur (http://6flkvkfylkirh.blogspot.com/) þar sem ég mun setja inn ýmsar upplýsingar varðandi flokkinn svo endilega fylgist vel með. Ef það eru síðan einhverjar spurningar sem að vakna upp varðandi mótið eða varðandi flokkinn, þá megið þið hafa samband við mig.

Kveðja,
Hörður G. Bjarnarson
Sími: 868-5611

Tölvupóstfang: hordur1981@gmail.com

Monday, September 2, 2013


Nú er handboltavertíðin hafin og æfingar hjá öllum yngri flokkum byrja í þessari viku.

Mikilvægt er að foreldrar skrái börnin sín strax í nýja skráningarkerfið sem Fylkir hefur tekið í notkun. Ef þið hafið ekki notað þetta áður þá þarf að nýskrá barnið í fyrstu en síðan er barnið skráð á hvert og eitt námskeið sem það hyggst taka þátt í.  Nora skráningakerfið er aðgengilegt á heimasíðu Fylkis  fylkir.com og þar er einnig að finna handbók sem leiðir ykkur áfram.  Ef eitthvað er óljóst í sambandi við skráningarferlið þá endilega hafið samband við starfsfólk Fylkishallar.

Hér koma nokkrar gagnlegar upplýsingar varðandi fyrirkomulag æfingargjalda handboltans þennan vetur.

  • Þeir sem fullgreiða æfingargjöldin fyrir lok 30. September fá 10% staðgreiðsluafslátt af  æfingargjöldunum
  • Systkinaafsláttur er 5% sem reiknast á öll systkin
  • Það er 5% millideildarafsláttur milli allra deilda  innan Fylkis
  • Hægt er að greiða með kreditkorti eða greiðsluseðli og dreifa  greiðslum til 3. mánaða.  Athugið að kr. 390 leggst ofan á hverja greiðslu greiðsluseðla. 

Frístundavagn Fylkis mun frá og með 9. september 2013 til 30. apríl 2014 keyra samkvæmt   skipulagi í tengslum við æfingar í Norðlingaholti, í Árbæjarskóla og á Fylkissvæðinu við Fylkisveg.  Hægt er að sjá áætlun frístundavagnsins á heimasíðu Fylkis  fylkir.com  Foreldrar eru eindregið hvattir til að nýta sér þennan þægileg fararmáta fyrir barnið.