Monday, September 30, 2013

Íslandsmótið um helgina



Sælar stelpur og foreldrar

Þá er komið af fyrsta mótinu á Íslandsmótinu í vetur. Mótið er haldið núna um
helgina (4-6 október) og eigum við leiki föstudag og laugardag. Við verðum með tvö lið á mótinu
einsog á Reykjavíkurmótinu og spilar hvert lið 4 leiki á mótinu. Það er ekki jafn stutt á milli leikja og síðast, en þið sjáið tímasetningar hér fyrir neðan.
Mótið er haldið í íþróttahúsinu Dalhús í Grafarvogi, heimavelli Fjölnis (Grafarvogslaug).

Fylkir 1 spilar á föstudeginum og eiga að fyrsta leik kl. 16.30 (mæting kl. 15.50, upphitun 16.10). Þær spila sem sagt fyrsta leikinn kl. 16.30 og seinasta leikinn kl. 20.30    

Föstudagur 4.október
16:30
Selfoss 1

:

Fylkir 1
18:30
Fylkir 1

:

Fram 1
19:30
Afturelding 1

:

Fylkir 1
20:30
Fylkir 1

:

Haukar 1

Fylkir 2 spilar á laugardeginum og eiga fyrsta leik 11.00 (mæting 10.20, upphitun 10.40). Þær spila sem sagt fyrsta leik 11.00 og seinasta leikinn sinn kl. 15.30


Laugardagur 5.október
11:00
Fylkir 2

:

Haukar 2
12:30
ÍBV 2

:

Fylkir 2
14:30
Fylkir 2

:

HK 2
15:30
Stjarnan 2

:

Fylkir 2

Það sem stelpurnar þurfa að koma með er bara það sama og síðast. Fylkisbúningur(Bolur, Stuttbuxur), sokkar, skó til að keppa í, vatnsflaska og helst einhvern íþróttagalla eða eitthvað slíkt til að vera í á milli leikja. Það er áfram gott að koma með eitthvað hollt og gott nesti með sér, til að fá smá orku milli leikja, hinsvegar er aðeins meiri tími milli leikja (eftir fyrsta leik hjá Fylki 1 og öðrum leik hjá Fylki 2) þar sem að það væri hægt að fara úr húsi til að borða, en ég hinsvegar mæli með því að koma frekar með gott nesti sem að er þá hægt að borða á þessum tíma, en svo er líka gott að vera með ávexti eða annað til að fá smá orku milli leikjanna.  

Ég mun síðan boða til foreldrafundar mjög bráðlega þar sem að ég mun kynna mig stuttlega, verður farið yfir veturinn, kosið foreldraráð og ýmislegt fleira. Ef það eru síðan einhverjar spurningar sem að vakna upp varðandi mótið eða varðandi flokkinn eða eitthvað annað, þá megið þið hafa samband við mig.

Kveðja,
Hörður G. Bjarnarson
Sími: 868-5611
Tölvupóstfang: hordur1981@gmail.com

No comments:

Post a Comment