Sæl öllsömul, þá styttist í næsta mót sem er 8.-10. nóvember og er í umsjá HK í Kópavogi. Ég var að enda við að skrá 3 lið til leiks þar sem að það er búið að fjölga í flokknum sem er frábært og vonandi bætast enn fleiri stelpur við þegar líður á tímabilið. Ég vil biðja ykkur foreldra að reyna taka helgina frá einsog allar helgarnar sem eru hér til hliðar á síðunni.
Ég vill líka benda aftur á facebook síðu flokksins sem þið ættuð að geta komist inná hér.
Einnig vill ég minna ykkur á að skrá börnin inná Fylkissíðunni, ef það er einhver í vandræðum með það getur hann haft samband við mig, allar upplýsingar til að ná í mig eru hér til hægri.
No comments:
Post a Comment